Innritun fyrir haustönn 2012
Umsækjendur sem útskrifast úr grunnskóla vorið 2012
(drög að tímasetningum / gætu breyst)
12. til 30. mars - Forinnritun
4. maí til 8. júní - Breyting á umsókn
Umsækjendur fæddir 1995 eða fyrr
4. apríl - 31. maí
Starfsbrautir fyrir fatlaða
Innritun fór fram 30. janúar til 29. febrúar, hafa verður samband beint við skóla ef láðist að sækja um
Rafræn innritun
Innritun í framhaldsskóla er rafræn, þ.e. sótt er um skólavist á netinu. Framhaldsskólar skilgreina sjálfir í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið inntökuskilyrði á einstakar námsbrautir. Inntökuskilyrði eru birt á vefsíðu hvers framhaldsskóla.
Hvaða aðstöðu þarf?
Þar sem innritun fer fram á netinu þurfa nemendur að komast í nettengda tölvu til að geta sótt um. Hægt er að komast í nettengdar tölvur bæði í grunnskólum og framhaldskólum. Allir framhaldsskólar bjóða upp á aðstoð sé hennar óskað.
Þarf að senda eitthvað með umsóknunum?
Nemendur 10. bekkjar þurfa ekki að senda afrit af prófskírteinum með umsóknum. Einkunnirnar eru sendar á rafrænu formi frá grunnskólunum til þeirra framhaldsskóla sem sótt er um. Vottorð eða sérstakar upplýsingar um nemendur, sem ekki er að finna á rafræna umsóknareyðublaðinu, geta nemendur hengt við umsókn sem fylgiskjal eða sent í pósti til þeirra skóla sem sótt er um.
Þeir umsækjendur sem eru að koma erlendis frá eða úr óhefðbundnum skólum, þurfa að skila inn einkunnablaði sjálfir. Best er að þeir setji það inn sem viðhengi með umsókninni eða sendi afrit af því til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík og merki það "Viðhengi með umsókn í framhaldsskóla".
Hvar má fá aðstoð og ráðgjöf?
Námsráðgjafar í grunn- og framhaldsskólum þekkja vel til náms á framhaldsskólastigi og eru umsækjendur hvattir til að leita upplýsinga og ráðgjafar hjá þeim. Gott er að vera tímanlega á ferðinni því að maímánuður er mikill annatími í framhaldsskólum.
Nemaftur á annað netfang. (Athugið að veflykillinn lendir oftast í ruslpóstinum á google og hotmail netföng)
Hér á vefnum er einnig hægt að nálgast rafrænt umsóknareyðublað og nálgast ýmsar upplýsingar um nám í framhaldsskólum.