+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Ármúla 12
108 Reykjavík

Sími: 581 4022
Bréfasími: 568 0335
fa@fa.is
http://www.fa.is/
Skólameistari
Gísli Ragnarsson
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Almennt nám

Almennt nám

-
Námsbraut: Almenn braut

Almenn námsbraut er opin öllum nemendum sem hafa lokið grunnskóla. Nám á brautinni er breytilegt eftir skólum en hver framhaldsskóli skipuleggur námsframboðið og birtir í skólanámskrá. Námsbrautin hentar nemendum sem eru óráðnir og hafa ekki gert upp hug sinn varðandi áframhaldandi nám og þeim sem vilja undirbúa sérstakt nám eða afla sér þekkingar á afmörkuðu sviði. Nemendur geta innritast á almenna námsbraut með mismunandi þarfir í huga. Suma vantar ef til vill aðeins herslumun í kjarnagreinum til þess að geta haldið áfram námi á öðrum brautum innan skólans en aðrir þurfa að bæta verulega við sig eftir nám í grunnskóla til þess að geta haldið áfram námi. Námið getur tekið eitt til tvö ár og miðast við þarfir einstakra nemenda og möguleika viðkomandi skóla til að koma á móts við þær. Hver skóli skipuleggur nám á almennri námsbraut og skilgreinir í skólanámskrá.

 
Námslína: Almenn braut

Þessi lína er ætluð nemendum sem uppfylla ekki almenn lágmarksskilyrði á aðrar námsbrautir framhaldsskólans.

Upplýsingar skóla um námið

Almenn námsbraut Fjölbrautaskólans við Ármúla er fyrir tvo hópar nemenda. Annars vegar þá sem ekki hafa ákveðið á hvaða námsbrautir þeir vilja skrá sig. Þeir eru á Almennri námsbraut uns þeir velja aðra braut.

Hins vegar er AN fyrir nemendur sem ekki fullnægja inntökuskilyrðum sem krafist er á aðrar brautir skólans. Á Almennri námsbraut stendur þeim til boða sérstakt nám í upprifjunaráföngum og annar stuðningur. Markmiðið er þeir geti með þessum stuðningi fært sig yfir á aðrar bóknámsbrautir skólans. Nemendunum á AN er heimilt að velja áfanga af öðrum bóknámsbrautum meðan þeir stunda nám í upprifjunáfanga og stuðningsáfanga.

Á Almennri námsbraut er boðið upp á upprifjunaráfanga, svonefnda 193-áfanga, í íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði. Þeir heita ÍSL 193, ENS 193, DAN 193 og STÆ 193. Hér er um er að ræða upprifjun á námsefni grunnskólans og undirbúning undir frekara nám í framhaldsskóla. Nemendur fá námseiningar fyrir þessa áfanga og þær nýtast sem valeiningar.

Nemendur í 193-áföngum eru jafnframt í áfanganum SNÝ 193. Það er stuðningsáfangi fyrir nýnema. Í þeim áfanga fá nemendur sérstaka aðstoð við nám sitt í viðkomandi 193-áfanga. Kennari SNÝ-áfangans er jafnframt umsjónarkennari þeirra nemenda.

Rík áhersla er lögð á aðhald með nemendum á Almennri námsbraut, bæði hvað varðar mætingar og ástundun í námi. Í því sambandi leggur FÁ mikla áherslu á samstarf heimilis og skóla með sterku umsjónarkerfi og reglulegu sambandi. Stefnt er að því að hafa einstaklingsfundi með nýnema á AN og foreldrum þeirra í upphafi haustannar 2008.

Samkvæmt samningi við menntamálaráðuneytið tekur Fjölbrautaskólinn við Ármúla við nemendum á Almenna námsbraut úr hverfum Reykjavíkur með póstnúmer 105 og 108.

Kennslustjóri Almennrar námsbrautar stýrir starfi brautarinnar í samstarfi við kennara SNÝ-hópanna.

Lengd náms og einingar

Annir: frá 8 til 12
Einingar: 0

Námsgerð í boði:

Dagskóli

Tengiliður náms:

Eiríkur Brynjólfsson kennslustjóri
eirikurb@fa.is
5814022
http://www.fa.is/fjolbrautaskolinn/brautir/almbraut/
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir