Fjölbrautaskólinn við Ármúla er áfangaskóli og kjarnaskóli heilbrigðisgreina. Skólinn býður upp á nám til stúdentsprófs á öllum fjórum bóknámsbrautum aðalnámskrár og nám til starfsréttinda á sex brautum á heilbrigðissviði auk framhaldsnáms fyrir sjúkraliða. Almenn námsbraut er starfrækt við skólann og er veittur mikill stuðningur við nemendur sem hann þurfa. Í skólanum er stór deild fyrir nemendur sem eiga annað móðurmál en íslensku. Í skólanum eru tvær sérdeildir, önnur fyrir mikið fatlaða nemendur og hin fyrir nemendur sem eru meira sjálfbjarga. Í skólanum er rekið öflugt fjarnám allt árið.
Hlutverk Fjölbrautaskólans við Ármúla er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda skólans svo að þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi. Skólinn leitast við að efla ábyrgð, víðsýni, frumkvæði, sjálfstraust og umburðarlyndi nemenda sinna, þjálfa þá í öguðum og sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun, kenna þeim að njóta menningarlegra verðmæta og hvetja þá til stöðugrar þekkingarleitar.