-
Námsleið: Starfsnám
Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef
menntamálaráðuneytisins og vef
Iðunnar fræðsluseturs.
-
Námsbraut: Íþrótta- og lýðheilsubraut
Stutt starfsnámsbraut fyrir þá sem hafa áhuga á að sérhæfa sig í íþróttum og lýðheilsu. Brautin er skipulögð í samræmi við ný framhaldsskólalög.
Námslína: Íþróttir- og lýðheilsa
Upplýsingar skóla um námið
Á íþrótta- og lýðheilsubraut eru bóklegar greinar og sérgreinar í íþróttum og lýðheilsu, s.s. íþróttafræði, íþróttagreinar og næringarfræði
Upplýsingar skóla um inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði á íþrótta- og lýðheilsubraut
Lágmarkseinkunn við lok grunnskóla
Íslenska: 4,5
Stærðfræði: 4,5
Lengd náms og einingar
Annir: frá 3 til 3
Feiningar: 90
Námsgerð í boði:

Dagskóli