+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Verzlunarskóli Íslands

Verzlunarskóli Íslands
Ofanleiti 1
103 Reykjavík

Sími: 590 0600
Bréfasími: 590 0601
verslo@verslo.is
http://www.verslo.is/
Skólameistari
Ingi Ólafsson

Tengiliður innritunar:
Þórður Hauksson
thordur@verslo.is
590 0613
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Almennt nám

Almennt nám

-
Námsbraut: Almenn braut

Almenn námsbraut er opin öllum nemendum sem hafa lokið grunnskóla. Nám á brautinni er breytilegt eftir skólum en hver framhaldsskóli skipuleggur námsframboðið og birtir í skólanámskrá. Námsbrautin hentar nemendum sem eru óráðnir og hafa ekki gert upp hug sinn varðandi áframhaldandi nám og þeim sem vilja undirbúa sérstakt nám eða afla sér þekkingar á afmörkuðu sviði. Nemendur geta innritast á almenna námsbraut með mismunandi þarfir í huga. Suma vantar ef til vill aðeins herslumun í kjarnagreinum til þess að geta haldið áfram námi á öðrum brautum innan skólans en aðrir þurfa að bæta verulega við sig eftir nám í grunnskóla til þess að geta haldið áfram námi. Námið getur tekið eitt til tvö ár og miðast við þarfir einstakra nemenda og möguleika viðkomandi skóla til að koma á móts við þær. Hver skóli skipuleggur nám á almennri námsbraut og skilgreinir í skólanámskrá.

 
Námslína: Almenn braut

Þessi lína er ætluð nemendum sem uppfylla ekki almenn lágmarksskilyrði á aðrar námsbrautir framhaldsskólans.

Upplýsingar skóla um námið

Verslunar- og frumkvöðlabraut

Námsbrautin býr nemendur undir störf í verslun og við þjónustu ásamt því að gefa margskonar innsýn í rekstur og stofnun fyrirtækja. Brautin er tveggja ára nám á fjórum önnum.

Þessi leið hentar vel fyrir útskrifaða nemendur úr 10. bekk sem ekki hyggjast leggja stund á nám til stúdentsprófs en vilja mennta sig til þess að auka forskot á vinnumarkaði.

Markmið brautar:

  • Að búa nemendur undir störf í verslun og við þjónustu
  • Að efla almenna og persónulega færni nemenda til að taksta á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á vinnumarkaði
  • Að veita nemendum faglegar forsendur til að sjá um verkefnastjórnun
  • Að efla kunnáttu og þor til að takast á við ný námstækifæri á vettvangi starfs eða skóla.
  • Að efla tölvunotkun og kunnáttu í helstu forritum sem eru notuð í námi

Upplýsingar skóla um inntökuskilyrði

Nemendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi.

Lengd náms og einingar

Annir: frá 4 til 4
Einingar: 76

Námsgerð í boði:

Dagskóli
Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir