Verzlunarskóli Íslands var stofnaður árið 1905. Hann er fjögurra ára bekkjarskóli þar sem kennt er á bóknámsbrautum til stúdentsprófs. Skólinn leggur áherslu á að bjóða nemendum sínum upp á gott nám sem mun opna fjölbreyttar leiðir til frekara náms í Háskólum eða á hinum almenna vinnumarkaði. Námið er fjölbreytt og ætti að höfða til allra. Lögð er viss áhersla á viðskiptagreinar fyrstu tvö árin þannig að allir nemendur geta fengið verslunarpróf að loknu öðru námsári.
Nemendur innritast á ákveðna námsbraut. Námið á öllum brautum er eins fyrsta árið, nema hvað nemendur velja á milli frönsku, spænsku og þýsku. Þetta auðveldar nemendum að skipta um braut í lok fyrsta árs. Prófin sem nemendur taka um jól og á vorin eru lokapróf í viðkomandi námsáfanga.
Skólinn er bekkjarskóli þar sem hver bekkur hefur sína heimastofu. Þetta eykur mjög samheldni nemenda.