
Markmið náms á listnámsbraut er að leggja grunn að frekara námi í listgreinum í sérskólum eða í skólum á háskólastigi. Námið greinist í kjarna, kjörsvið og frjálst val nemanda. Nám í kjarna er sameiginlegt öllum nemendum brautarinnar. Kjörsvið felur í sér sérhæfingu í þeirri list- eða hönnunargrein sem nemandi velur sér: almenn hönnun, fata- og textílhönnun, fjölmiðlatækni, keramikhönnun, kvikmyndir, listdans, margmiðlunarhönnun, myndlist, og tónlist. Námið fer annaðhvort fram í viðkomandi framhaldsskóla eða viðurkenndum listaskóla.
Listnámsbraut er skipulögð sem þriggja ára námsbraut og útskrifast nemendur með listnámsbrautarpróf. Nemendur sem óska að ljúka stúdentsprófi geta bætt við sig námi í völdum bóklegum greinum og aflað sér þannig almennari réttinda til náms á háskólastigi.
Með námi í almennri hönnun á listnámsbraut er lagður grunnur að frekara námi í hönnunargreinum í sérskólum eða í skólum á háskólastigi. Nemendur kynnast almennu hönnunarferli sem felst í að skilgreina forsendur og þörf og afla upplýsinga. Þeir þjálfast í að vinna úr forsendum hönnunarinnar, hugleiða útlit, notagildi, öryggi og áreiðanleik og rannsaka, þróa og tjá hönnunartillöguna með því að gera mismunandi líkön eða skissur.
Dagskóli
Fjarnám