-
Námsleið: Starfsnám
Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef
menntamálaráðuneytisins og vef
Iðunnar fræðsluseturs.
-
Námsbraut: Hönnunar- og handverksgreinar
Námslína: Gull- og silfursmíði
Löggilt iðngrein. Markmið námsins er að nemendur verði færir um að annast viðgerðir og nýsmíði skartgripa, listmuna og nytjahluta úr gulli, silfri og öðrum málmum, allt frá fyrstu hugmynd til fullbúinnar vöru. Meðalnámstími er fjögur ár, þar af fimm annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun. Náminu lýkur með sveinsprófi.
Lengd náms og einingar
Annir: frá 8 til 10
Feiningar: 170
Námsgerð í boði:

Dagskóli
Tengiliður náms:
Þóra Sigurðardóttir Skólastjóri Hönnunar- og handverksskólans
tsi@tskoli.is
5149201
http://www.tskoli.is/skolar/honnunar-og-handverksskolinn/honnunar-og-handverksskolinn