Markmið Myndlistaskólans í Reykjavík er að efla grunnmenntun á sviði sjónlista og að miðla sem best þekkingu í verklegum og fræðilegum þáttum til nemenda. Í boði eru grunn- og framhaldsnámskeið á ýmsum sviðum og miðast mæting oftast við eitt skipti í viku.
Við upphaf náms er öllum nemendum skólans ráðlagt að byrja á grunnnámskeiðum í teikningu en teiknikunnátta er undirstaða allrar frekari menntunar á þessu sviði. Námskeiðin eru ýmist eins eða tveggja anna.
Við námskeiðslok fær nemandinn staðfestingu um þátttöku sína og ástundun. Nám við skólann er í flestum tilvikum metið til eininga innan framhaldsskólakerfisins sé það stundað með fullnægjandi hætti en lágmarksmæting er 80%.
Við Myndlistaskólann í Reykjavík er einnig starfrækt á framhaldsskólastigi fullt nám í dagskóla: Myndlistar- og hönnunarsvið.
Myndlistaskólinn í Reykjavík er sjálfseignarstofnun sem er rekinn af myndlistarmönnum. Skólinn er viðurkenndur af menntamálaráðuneyti sem einkaskóli á framhaldsskólastigi, í gildi er þjónustusamningur um kennslu milli skólans og ráðuneytisins. Skólinn var stofnaður árið 1947 og hefur starfað óslitið síðan. Skólinn er fagskóli á sviði sjónmennta, við hann kenna myndlistarmenn og hönnuðir sem veljast til starfa á grundvelli menntunar og listræns ferils.
1. Framhaldsskólastig / undirbúningur fyrir nám á háskólastigi;
Myndlista- og hönnunarsvið (Dagskóli/FULLT NÁM),
Keramik kjörsvið (Dagskóli/FULLT NÁM).
Kennt er í samræmi við námskrá framhaldsskóla og námskeið. Um er að ræða áfanga á framhaldsskólastigi og símenntun fyrir eldri an 16 ára. Námið nýtist sem grunnur að áframhaldandi námi, til uppbyggingar tómstundastarfs og til að dýpka listskynjun og þekkingu á listum.
2. Diplómanám;
MÓTUN-leir og tengd efni, TEIKNING og TEXTÍLL