Í Menntaskólanum við Sund er lögð sérstök áhersla á náttúrulæsi, menningu og sögu. Lögð er vaxandi áhersla á verkefnatengt nám og að verkefni sem nemendur takast á við tengist daglegu lífi. Það er stefna skólans að nám eigi að vera markmiðsbundið frekar en efnisbundið. Það skipti mestu hvaða getu, færni og leikni nemandi býr yfir að námi loknu.

Til að uppfylla lágmarksskilyrði til að hefja nám til stúdentsprófs í MS þarf einkunn úr grunnskóla vera 6 að lágmarki í kjarnagreinunum íslensku, ensku og stærðfræði. Námsstaða í öðrum námsgreinum verður einnig að vera ásættanleg. Við val á nemendum við innritun er einnig tekið mið af öðrum einkunnum úr grunnskóla.
Tvær námsbrautir eru við skólann, félagsfræðabraut og náttúrufræðibraut.
Félagsfræðabraut. Áhersla á menningu, sögu og samfélag. Nemendur munu fá tækifæri til að efla samskiptahæfni sína, lýðræðis- og jafnréttisvitund, læsi í víðum skilningi og tjáningu í ræðu og riti.
Náttúrufræðibraut. Áhersla á góðan skilning á náttúrufræðilegum hugtökum, vísindalegum vinnubrögðum og hugsunarhætti sem nýtist í daglegu lífi.
Menntaskólinn við Sund er bóknámsskóli sem fylgir bekkjarkerfi. Það er markmið skólans að bjóða nemendum aðeins það besta, góða þjónustu og fyrsta flokks nám óháð námsbrautum. Skólinn leggur áherslu á náttúrulæsi, menningu og sögu á báðum brautum og miðast námið við að búa nemendur sem best undir háskólanám og líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi.