-
Námsleið: Almennt nám
-
Námsbraut: Almenn braut
Almenn námsbraut er opin öllum nemendum sem hafa lokið grunnskóla. Nám á brautinni er breytilegt eftir skólum en hver framhaldsskóli skipuleggur námsframboðið og birtir í skólanámskrá. Námsbrautin hentar nemendum sem eru óráðnir og hafa ekki gert upp hug sinn varðandi áframhaldandi nám og þeim sem vilja undirbúa sérstakt nám eða afla sér þekkingar á afmörkuðu sviði. Nemendur geta innritast á almenna námsbraut með mismunandi þarfir í huga. Suma vantar ef til vill aðeins herslumun í kjarnagreinum til þess að geta haldið áfram námi á öðrum brautum innan skólans en aðrir þurfa að bæta verulega við sig eftir nám í grunnskóla til þess að geta haldið áfram námi. Námið getur tekið eitt til tvö ár og miðast við þarfir einstakra nemenda og möguleika viðkomandi skóla til að koma á móts við þær. Hver skóli skipuleggur nám á almennri námsbraut og skilgreinir í skólanámskrá.
Námslína: Almenn braut
Þessi lína er ætluð nemendum sem uppfylla ekki almenn lágmarksskilyrði á aðrar námsbrautir framhaldsskólans.
Upplýsingar skóla um námið
Brautin er ætluð nemendum sem ekki hafa gert upp hug sinn varðandi áframhaldandi nám í framhaldsskóla og nemendum sem ekki hafa náð lágmarkseinkunn/-einkunnum inn á aðrar brautir framhaldsskóla eða hafa ekki tekið samræmd próf.
Brautin greinist í AN-1, AN-2 og AN-3.
- AN-1 er fyrir þá sem ekki hafa náð lágmarksárangri í tveimur eða fleiri samræmdum prófum.
- AN-2 er fyrir þá sem hafa fallið í einni samræmdri grein á grunnskólaprófi.
- AN-3 er fyrir þá sem hafa staðist grunnskólapróf en hafa ekki ákveðið námsbraut eða standast ekki kröfur inn á einstakar brautir.
Markmið námsins er að veita góða undirstöðu í kjarnagreinum og jafnframt að efla sjálfstraust og sjálfsskilning nemenda og rækta með þeim jákvætt viðhorf til náms og starfs.
Lengd náms og einingar
Annir: frá 2 til 4
Einingar: 23
Námsgerð í boði:

Dagskóli