Fjölbrautaskólinn í Garðabæ er almennur framhaldsskóli með megináherslur á öflugar bóknámsbrautir, íþrótta- og listnámsbraut. Boðið er upp á sérstaka þjónustu á þessum brautum fyrir nemendur með góðan vitnisburð úr grunnskóla undir kjörorðunum: Hópur - hraði - gæði.
Skólinn hefur skapað sér sérstöðu fyrir kraftmikið og vaxandi listnám, bæði á sviði myndlistar og textíl- og fatahönnunar. Skólinn starfar í glæsilegu húsnæði við Skólabraut í Garðabæ sem búið er fullkomnum kennslubúnaði í listgreinum og raungreinum, tölvubúnaði af bestu gerð og góðri lesaðstöðu. Mjög góð íþróttaaðstaða er fyrir hendi og boðið er upp á sérstakt afreksíþróttasvið sem gefur einingar til stúdentsprófs. Það nýjasta á sviði íþrótta eru áfangar í hestaíþróttum.
Upplýsingar um námsbrautir
Námsbrautir til stúdentsprófs
Styttri námsbrautir
Nánari upplýsingar í námsvísi á heimasíðu skólans.
Félagslíf. Skólinn vill stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri lífssýn nemenda sinna. Nemendur eru hvattir og styrktir til þátttöku í listum, hönnun, íþróttum, ferðamennsku og öðrum viðfangsefnum sem efla lífsgleði.
Helstu þættir félagslífsins eru: