Nám til stúdentsprófs er skipulagt sem undirbúningur að námi á háskólastigi. Stúdentsprófið eitt og sér tryggir þó ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi, hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf, t.d. í læknadeild og þeir sem sækja um listaháskóla þurfa oft að skila möppu með verkum sínum. Nauðsynlegt er fyrir nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.
Nýju framhaldsskólalögin kveða svo á að í kjarna á stúdentsprófsbrautum séu 45 nýjar einingar í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólar og nemendur ráða að öðru leyti miklu um hvaða greinar er boðið upp á. Auglýst verður sérstaklega ef einhver skóli býður upp á nám með nýju skipulagi.
Inntökuskilyrði náttúrufræðibrautar
Til að hefja nám á náttúrufræðibraut skulu nemendur hafa þreytt lokapróf grunnskóla í íslensku, ensku, stærðfræði og náttúrufræði. Einkunnir við lok grunnskóla í íslensku, stærðfræði og náttúrufræði skulu vera 6,0 að lágmarki í hverri námsgrein en 5,0 að lágmarki í ensku.
Lágmarkseinkunn lokaprófs úr grunnskóla
Íslenska 6
Stærðfræði 6
Enska 5
Náttúrufræði 6
Dagskóli