Menntaskólinn við Hamrahlíð er ríkisskóli sem starfar samkvæmt framhaldsskólalögum. Hlutverk hans er að mennta nemendur til stúdentsprófs með áherslu á undirbúning fyrir nám í háskólum. Í Menntaskólanum við Hamrahlíð eru ólíkar þarfir einstaklinga virtar og gengið er út frá vilja nemenda til að axla ábyrgð. Áhersla er lögð á fjölbreytni í valhluta námsins og kappkostað er að kynna nemendum vinnubrögð sem tíðkast í háskólanámi.