+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Menntaskólinn í Reykjavík

Menntaskólinn í Reykjavík
Lækjargötu 7
101 Reykjavík

Sími: 545 1900
Bréfasími: 545 1901
mr@mr.is
http://www.mr.is/
Skólameistari
Yngvi Pétursson

Tengiliður innritunar:
Yngvi Pétursson
yngvi@mr.is
5451900
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

Bóknámsbrautir til stúdentsprófs

Menntaskólinn í Reykjavík er hefðbundinn menntaskóli þar sem kennt er á bóknámsbrautum til stúdentsprófs. Skólinn leggur áherslu á að haga menntun nemenda sinna þannig að þeir verði sem hæfastir til að stunda fræðilegt nám í háskóla og hljóta jafnframt trausta almenna menntun, sem komi þeim að gagni hvað sem við tekur að loknu stúdentsprófi. Skólinn leitast við að efla persónuþroska nemenda, kenna þeim að temja sér sjálfstæða, gagnrýna hugsun og sjálfstæð, öguð vinnubrögð.

Námsframboð Menntaskólans í Reykjavík

Bekkjaskóli

Menntaskólinn í Reykjavík er fjögurra ára bekkjaskóli. Hverjum árgangi er skipt í bekki eftir námsbrautum og deildum, sem nemendur hafa valið sér.

Deildaskipting

Við innritun í skólann velja nemendur um tvær meginnámsbrautir, málabraut og náttúrufræðibraut. Á öðru námsári er að auki valið um tvær leiðir á náttúrufræðibraut. Á þriðja námsári eru deildirnar orðnar átta, á málabraut er um tvær nýmáladeildir og tvær fornmáladeildir að velja, en á náttúrufræðibraut eru tvær eðlisfræðideildir og tvær náttúrufræðideildir. Auk þess að velja námsbraut og deild velja nemendur þriðja erlenda tungumálið (frönsku, spænsku, þýsku) og í efri bekkjunum eru valgreinar.

Tilraunabekkur fyrir 9. bekkinga

Menntaskólinn í Reykjavík býður nemendum sem hafa lokið 9. bekk og hluta af námi 10. bekkjar að sækja um sérstakan tilraunabekk þar sem farið er yfir námsefni fyrsta árs í framhaldsskóla og hluta af námsefni 10. bekkjar grunnskólans.
Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir