-
Námsleið: Starfsnám
Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef
menntamálaráðuneytisins og vef
Iðunnar fræðsluseturs.
-
Námsbraut: Matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreinar
Námslína: Matreiðsla
Löggilt iðngrein. Markmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þá þekkingu og færni sem matreiðslumönnum er nauðsynleg í störfum sínum á hótelum, farþegaskipum, veitingahúsum, kaffihúsum, í mötuneytum eða annars staðar þar sem veitinga- eða veisluþjónusta er í boði. Meðalnámstími er fjögur ár, samtals þrjár annir í skóla og 126 vikna starfsþjálfun.
Upplýsingar skóla um námið
Upplýsingar skóla um inntökuskilyrði
Nemendur þurfa að vera komnir á námssamning í matreiðslu til að geta innritað sig í iðnnám.
Lengd náms og einingar
Annir: frá 8 til 8
Einingar: 186
Námsgerð í boði:

Dagskóli
Tengiliður náms:
Námsráðgjafar Áfangastjóri
http://www.mk.is/index.php?option=com_content&task=view&id=102&Itemid=141