+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Menntaskólinn í Kópavogi

Menntaskólinn í Kópavogi
Digranesvegi 51
200 Kópavogi

Sími: 594 4000
Bréfasími: 594 4001
mk@mk.is
http://www.mk.is/
Skólameistari
Margrét Friðriksdóttir

Tengiliður innritunar:
Guðrún S. Helgadóttir, Þórdís Þórisdóttir
gudrun.helgadottir@mk.is
594 4000
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Stúdentsnám

Nám til stúdentsprófs er skipulagt sem undirbúningur að námi á háskólastigi. Stúdentsprófið eitt og sér tryggir þó ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi, hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf, t.d. í læknadeild og þeir sem sækja um listaháskóla þurfa oft að skila  möppu með verkum sínum. Nauðsynlegt er fyrir nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.

Nýju framhaldsskólalögin kveða svo á að í kjarna á stúdentsprófsbrautum séu 45 nýjar einingar í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólar og nemendur ráða að öðru leyti miklu um hvaða greinar er boðið upp á. Auglýst verður sérstaklega ef einhver skóli býður upp á nám með nýju skipulagi.


 

-
Námsbraut: Viðskipta- og hagfræðibraut

Viðskipta- og hagfræðibraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegu námi með áherslu á sérsvið viðskipta- og hagfræðigreina. Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla í viðskiptafræðum, hagfræði og skyldum greinum. Nám á viðskipta- og hagfræðibraut tekur að jafnaði 4 ár og er fjöldi eininga 140 sem skiptast í kjarna (98 ein.), kjörsvið (30 ein.) og frjálst val (12. ein.). Í boði er að leggja áherslu á viðskipti eða hagfræði. Brautirnar eru ólíkar eftir skólum og nauðsynlegt að kynna sér betur framboðið á vefsíðum skólanna.

 
Námslína: Viðskipta- og hagfræðigreinar

Upplýsingar skóla um námið

Viðskipta- og hagfræðibraut er ný stúdentsbraut í Menntaskólanum í Kópavogi. Hún veitir góðan undirbúning fyrir nám í rekstrar-, viðskipta- og lögfræðigreinum á háskólastigi. Nemendur fá bæði góða innsýn í íslenskt viðskiptaumhverfi og almennan þekkingargrunn sem nýtist þeim í eigin fjármálum til framtíðar.

Nemendur á viðskipta- og hagfræðibraut taka jafnmarga stærðfræðiáfanga og nemendur á náttúrufræðibraut, samtals 15 einingar.

Hér má sjá prúðbúna MK-inga á árshátíðinni.

Upplýsingar skóla um inntökuskilyrði

Nemandi þarf að hafa lokið grunnskólaprófi í ensku, íslensku og stærðfræði með lokaeinkunn 6.

Lengd náms og einingar

Annir: frá 8 til 10
Einingar: 140

Námsgerð í boði:

Dagskóli

Tengiliður náms:

Guðrún S. Helgadóttir, Þórdís Þórisdóttir Námsráðgjafar


http://tungu.net/index.php?option=com_content&task=view&id=72&Itemid=146
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir