+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Menntaskólinn í Kópavogi

Menntaskólinn í Kópavogi
Digranesvegi 51
200 Kópavogi

Sími: 594 4000
Bréfasími: 594 4001
mk@mk.is
http://www.mk.is/
Skólameistari
Margrét Friðriksdóttir

Tengiliður innritunar:
Guðrún S. Helgadóttir, Þórdís Þórisdóttir
gudrun.helgadottir@mk.is
594 4000
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Stúdentsnám

Nám til stúdentsprófs er skipulagt sem undirbúningur að námi á háskólastigi. Stúdentsprófið eitt og sér tryggir þó ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi, hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf, t.d. í læknadeild og þeir sem sækja um listaháskóla þurfa oft að skila  möppu með verkum sínum. Nauðsynlegt er fyrir nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.

Nýju framhaldsskólalögin kveða svo á að í kjarna á stúdentsprófsbrautum séu 45 nýjar einingar í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólar og nemendur ráða að öðru leyti miklu um hvaða greinar er boðið upp á. Auglýst verður sérstaklega ef einhver skóli býður upp á nám með nýju skipulagi.


 

-
Námsbraut: Félagsfræðabraut

Félagsfræðabraut er ætlað að veita nemendum góða og almenna undirstöðuþekkingu í bóklegu námi með áherslu á samfélagsgreinar. Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla, einkum á sviði félagsvísinda. Nám á félagsfræðabraut tekur að jafnaði 4 ár og er fjöldi eininga 140 sem skiptast í kjarna (98 ein.), kjörsvið (30 ein.) og frjálst val (12. ein.). Í boði eru nokkrar mismunandi línur á brautinni og má m.a. nefna alþjóðamál, félagsfræði og hagfræði. Brautirnar eru ólíkar eftir skólum og nauðsynlegt er að kynna sér betur framboðið á vefsíðum skólanna.

 
Námslína: Félagsgreinar

Upplýsingar skóla um námið

Félagsfræðabraut í MK er mjög góður undirbúningur fyrir háskólanám í félags- og hugvísindum. Lögð er áhersla á sögu, félagsfræði og sálfræði auk íslensku. Fjölmiðlafræði, þjóðhagfræði og landafræði eru meðal kjarnagreina.

Áhersla er lögð á tengingu við menningu, samfélag, atvinnulíf og fjölmiðla. Jafnrétti og umburðarlyndi eru höfð að leiðarljósi. Nemendur þjálfast í sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun. Námsefni er mikið til á netinu, s.s. glærur úr fyrirlestrum, myndbönd, gagnvirk próf og vefleiðangrar auk þess sem nemendur gera kannanir og vinna úr þeim. Mikið er að lesa og margt að læra, bæði um sjálfan sig og samfélagið sem við lifum í. 

Nemendur MK í LAN103 heimsækja Hellisheiðarvirkjun

Upplýsingar skóla um inntökuskilyrði

Nemandi þarf að hafa lokið grunnskólaprófi í ensku, íslensku og stærðfræði með lokaeinkunn 6.

Lengd náms og einingar

Annir: frá 6 til 8
Einingar: 140

Námsgerð í boði:

Dagskóli

Tengiliður náms:

Guðrún S. Helgadóttir. Þórdís Þórisdóttir Námsráðgjafar
gudrun.helgadottir@mk.is, thordis.thorisdottir@mk.is

http://www.mk.is/index.php?option=com_content&task=view&id=68&Itemid=111
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir