
Þessi lína er ætluð nemendum sem uppfylla ekki almenn lágmarksskilyrði á aðrar námsbrautir framhaldsskólans.
Framhaldsskólabraut
Kennsla á framhaldsskólabraut hófst í Menntaskólanum í Kópavogi haustið 2010 samkvæmt lögum um framhaldsskóla og er brautin tilraunakennd í samstarfi við menntamálaráðuneytið. Ýmsar nýjungar eru á brautinni varðandi námsmarkmið, fyrirkomulag, kennsluhætti og námsefni, og glíma nemendur að hluta við nýjar námsgreinar sem byggðar eru á lykilhæfniþáttum nýrrar aðalnámskrár. Meðal námsgreina eru sjálfbærni, fjármálalæsi, samfélagið í nærmynd, verklegt nám og starfskynning. Sveigjanleiki í námi og námsmati er eins mikill og kostur er, agi og utanumhald er mikið. Námið er einingabært (á fyrsta þrepi) og námslok með ýmsum hætti eftir þörfum hvers og eins. Hægt er að ljúka framhaldsskólaprófi og útskrifast frá Menntaskólanum í Kópavogi að loknum 90-120 framhaldsskólaeiningum, sem eru nýjar einingar samkvæmt lögum um framhaldsskólapróf. Sætafjöldi á brautina er takmarkaður, nú stundar 21 nemandi nám á framhaldsskólabraut.
Grunnnám í matvælagreinum (almenn braut 3). Í Hótel og matvælaskóla MK er boðið upp á Almenna braut 3 sem er grunnnám í matvælagreinum fyrir þá sem ætla að verða matreiðslumenn, þjónar (framreiðslumenn), bakarar eða kjötiðnaðarmenn. Nemendur fara á þessa braut til að undirbúa sig fyrir iðnnámið og fara að 2 önnnum loknum á námssamning í iðngrein sinni. Grunnnámið er síðan metin inn í iðnnámið. Þessi braut er ætluð nemendum 16-18 ára sem koma beint úr grunnskóla og hafa ekki námssamning.
Inntökuskilyrði á framhaldskólabraut eru þau að nemandinn hafi náð einkunninni 5 í að minnsta kosti einni af þremur undirstöðugreinunum, íslensku, ensku og stærðfræði í grunnskóla. Upplýsingar um innritun á haustönn 2011 má fá hjá námsráðgjöfum skólans.
Til innritunar í grunnnámið í matvælagreinum (almenna braut 3) þarf nemi að hafa náð einkunni 5 í a.m.k. tveimur af þremur eftirfarandi greinum: íslensku, ensku eða stærðfræði.
Dagskóli