Menntaskólinn Hraðbraut býður stúdentspróf á tveimur árum. Árin tvo eru uppbyggð af fimmtán lotum og nemendur taka þrjár námsgreinar fyrir í einni lotu og ná þannig fullu húsi eininga til stúdentsprófs á tveimur árum. Loturnar standa yfir í sex vikur hver, nema lokalotan sem er tvær vikur.
Nemendafjöldi er innan við 200 manns svo það ríkir persónulegur og heimilislegur andi þar sem allir eru vel sýnilegir.