+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Austurbergi 5
111 Reykjavík

Sími: 570 5600
Bréfasími: 567 0389
fb@fb.is
http://www.fb.is/
Skólameistari
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir

Tengiliður innritunar:
Berglind Halla Jónsdóttir
bhj@fb.is
5705608
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Starfsnám

Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef menntamálaráðuneytisins og vef Iðunnar fræðsluseturs.

-
Námsbraut: Uppeldis- og tómstundagreinar

Uppeldis- og tómstundagreinar

 
Námslína: Íþróttabraut

Markmið íþróttanáms er að veita nemendum fræðilega og verklega undirstöðuþjálfun í kennslu og þjálfun íþrótta og hreyfináms fyrir börn og unglinga. Starfsþjálfun er skipulögð af skóla í samráði við íþróttafélög og felst í að nemendur hafa umsjón með þjálfun hóps barna og/eða unglinga yfir tiltekið tímabil. Meðalnámstími er fjórar annir.

Upplýsingar skóla um námið

Gagnlegt og uppbyggilegt nám með skemmtilegu fólki

Í áföngum á íþróttabraut fræðast nemendur um allt sem viðkemur þjálfun í íþróttum. Byrjað er á að fjalla um íþróttir barna og svo byggt ofan á það með íþróttasálfræði og þjálffræði. Í íþróttagreinum er tekin fyrir þjálfun barna í hinum ýmsu íþróttagreinum. Nemendur ljúka þjálfarastigi ÍSÍ (1a, b og c) í a.m.k. fjórum íþróttagreinum, allt eftir eigin áhuga. Auk þess klára nemendur almennan hluta 1 og 2 í þjálfarastiga ÍSÍ.

Nemendur á íþróttabraut mynda ákveðinn skemmtilegan kjarna í skólanum og kynnast vel.

Markmið íþróttafræðináms er að veita nemendum fræðilega og verklega undirstöðuþekkingu í kennslu og þjálfun íþrótta og hreyfináms fyrir börn og unglinga. Námið er skilgreint sem 73 eininga sjálfstætt starfsnám þar sem starfsvettvangur er þjálfun barna og unglinga hjá félagasamtökum og skólum. Námið nýtist einnig sem heppilegur undirbúningur fyrir háskólanám á sviði íþróttafræða hér á landi sem erlendis.

Íþróttabrautin í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er með þeim stærri á landinu og er í örum vexti. Það starfa 6 íþróttakennarar með ólíka reynslu við FB. Þar af leiðandi er breiddin og fjölbreytnin í kennslu og íþróttagreinum mjög mikil í skólanum.

Í FB er frábær aðstaða til íþróttaiðkunnar:
• Sundlaug – inni og úti
• Stór glæsilegur íþróttasalur
• Gervigrasvöllur í fullri stærð
• Ný lyftingatæki
• Fallegt umhverfi fyrir útivist

Íþróttabrautin passar vel við aðrar brautir skólans og er auðvelt að taka með öðrum brautum skólans þannig að það er t.d.hægt að útskrifast af félagsfræðabraut með íþróttafræði og íþróttagreinar í kjörsviði.

Nemendur á íþróttabraut geta lokið stúdentsprófi með tvennum hætti:
1. Með því að nota námið sem kjörsvið eða frjálst val á bóknámsbrautum.
2. Lokið viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Lengd náms og einingar

Annir: frá 8 til 10
Einingar: 140

Námsgerð í boði:

Dagskóli
Blandað nám

Tengiliður náms:

Torfi Magnússon kennslustjóri
tm@fb.is

http://www.fb.is/content/view/94/107/
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir