+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Austurbergi 5
111 Reykjavík

Sími: 570 5600
Bréfasími: 567 0389
fb@fb.is
http://www.fb.is/
Skólameistari
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir

Tengiliður innritunar:
Berglind Halla Jónsdóttir
bhj@fb.is
5705608
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Stúdentsnám

Nám til stúdentsprófs er skipulagt sem undirbúningur að námi á háskólastigi. Stúdentsprófið eitt og sér tryggir þó ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi, hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf, t.d. í læknadeild og þeir sem sækja um listaháskóla þurfa oft að skila  möppu með verkum sínum. Nauðsynlegt er fyrir nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.

Nýju framhaldsskólalögin kveða svo á að í kjarna á stúdentsprófsbrautum séu 45 nýjar einingar í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólar og nemendur ráða að öðru leyti miklu um hvaða greinar er boðið upp á. Auglýst verður sérstaklega ef einhver skóli býður upp á nám með nýju skipulagi.


 

-
Námsbraut: Náttúrufræðibraut

Náttúrufræðibraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið náttúruvísinda. Brautin býr nemendur undir nám í háskóla í náttúruvísindum, stærðfræði og öðrum greinum sem byggja á góðri undirstöðu í náttúruvísindum. .Nám á náttúrufræðibraut tekur að jafnaði 4 ár og er fjöldi eininga 140 sem skiptast í kjarna (98 ein.), kjörsvið (30 ein.) og frjálst val (12. ein.). Í boði eru nokkrar mismunandi línur á brautinni og má m.a. nefna eðlis- og efnafræði, eðlisfræði, náttúrufræði, líffræði, lífvísindi og tölvur. Brautirnar eru ólíkar eftir skólum og nauðsyn að kynna sér betur framboðið á vefsíðum skólanna.

 
Námslína: Náttúrufræðigreinar

Upplýsingar skóla um námið

Góður grunnur í raungreinum opnar margar dyr

Með því að nýta sér alla möguleika, sem fjölbrautakerfið býður upp á í stærðfræði og raungreinum, opnast dyr að mörgum áhugaverðum námsbrautum á háskólastigi. Nemendur hafa möguleika á að byggja góðan grunn fyrir framhaldsnám, sem krefst góðrar undirstöðu í stærðfræði og raungreinum þar sem skólinn býður upp á marga áhugaverða valáfanga í þessum greinum.

Náttúrufræðibraut er góður undirbúningur fyrir margar námsleiðir
Nám á náttúrufræðibraut er skipulagt sem 8 anna nám og því lýkur með
stúdentsprófi. Námi á náttúrufræðibraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið náttúruvísinda.
Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla í náttúruvísindum, stærðfræði og öðrum greinum sem byggjast á góðri undirstöðu í náttúruvísindum, s.s. heilbrigðisgreinum, verkfræði, tæknifræði og landbúnaðarfræðum.

Náttúrufræðibraut er sú braut í framhaldsskóla sem opnar leið inn í flestar deildir við háskóla. Nám á náttúrufræðibraut við FB hefur reynst nemendum góður grunnur undir háskólanám í ýmsum raungreinum. Má nefna að nemendur frá FB hafa hlotið hæstu einkunn sem gefin hefur verið í verkfræði og læknisfræði við Háskóla Íslands.

Þriggja ára náttúrufræðibraut
Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er hægt að ljúka stúdentsprófi á náttúrufræðibraut á 6 önnum. Námið hentar nemendum sem sýnt hafa góðan árangur í námi í grunnskóla. Útbúin er sérstök stundaskrá fyrir nemendur sem ætla að ljúka námi á náttúrufræðibraut á þremur árum.

Erlent samstarf nemenda í FB
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur á undanförnum árum tekið þátt í Comeníus verkefni á vegum Evrópusambandsins. Í tengslum við þetta verkefni hafa nemendur FB t.d. farið til Þýskalands, Englands, Ungverjalands og Belgíu og erlendir nemendur hafa heimsótt skólann. Skólinn hefur einnig tekið þátt í European Classes í Belgíu, einu eftirsóttasta framhaldsskólaverkefni í Evrópu.

Lengd náms og einingar

Annir: frá 8 til 10
Einingar: 140

Námsgerð í boði:

Dagskóli
Kvöldskóli
Blandað nám

Tengiliður náms:

Eiríkur Jensson kennslustjóri


http://www.fb.is/content/view/83/96/
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir