Nám til stúdentsprófs er skipulagt sem undirbúningur að námi á háskólastigi. Stúdentsprófið eitt og sér tryggir þó ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi, hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf, t.d. í læknadeild og þeir sem sækja um listaháskóla þurfa oft að skila möppu með verkum sínum. Nauðsynlegt er fyrir nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.
Nýju framhaldsskólalögin kveða svo á að í kjarna á stúdentsprófsbrautum séu 45 nýjar einingar í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólar og nemendur ráða að öðru leyti miklu um hvaða greinar er boðið upp á. Auglýst verður sérstaklega ef einhver skóli býður upp á nám með nýju skipulagi.
Blindur er bóklaus maður
Málabraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á erlend tungumál, s.s. ensku, dönsku og a.m.k. tvö önnur tungumál. Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla, einkum þar sem gerð er krafa um góða tungumálakunnáttu. Nám á málabraut er skipulagt sem 8 anna nám.
Nemandi velur sér ekki færri en þrjár greinar sem kjörsviðsgreinar, annaðhvort viðbót við kjarnagreinar eða nýjar greinar. Samanlagt nám í grein á kjörsviði og í kjarna verði að lágmarki 9 einingar. Nemandi á málabraut getur einnig tekið allt að 12 eininga nám á kjörsviðum annarra brauta sem hluta af sínu kjörsviði. Þó mega einingar í grein ekki vera færri en 9.
Stúdentspróf af málabraut er heppilegur undirbúningur fyrir háskólanám í hugvísindum, einkum íslensku, bókmenntafræði,
erlendum tungumálum, sagnfræði og heimspeki. Margir nemendur af málabraut hafa farið í kennaranám eða lagt fyrir sig einhvers konar ferðamálafræði til þess að starfa á ferðaskrifstofum eða í móttökum hótela eða orðið leiðsögumenn, flugfreyjur og flugþjónar.
Dagskóli
Kvöldskóli
Blandað nám