+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Austurbergi 5
111 Reykjavík

Sími: 570 5600
Bréfasími: 567 0389
fb@fb.is
http://www.fb.is/
Skólameistari
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir

Tengiliður innritunar:
Berglind Halla Jónsdóttir
bhj@fb.is
5705608
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

-
Námsleið: Stúdentsnám

Nám til stúdentsprófs er skipulagt sem undirbúningur að námi á háskólastigi. Stúdentsprófið eitt og sér tryggir þó ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi, hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur að gangast undir inntökupróf, t.d. í læknadeild og þeir sem sækja um listaháskóla þurfa oft að skila  möppu með verkum sínum. Nauðsynlegt er fyrir nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á háskólastigi að afla sér áreiðanlegra upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.

Nýju framhaldsskólalögin kveða svo á að í kjarna á stúdentsprófsbrautum séu 45 nýjar einingar í íslensku, ensku og stærðfræði. Skólar og nemendur ráða að öðru leyti miklu um hvaða greinar er boðið upp á. Auglýst verður sérstaklega ef einhver skóli býður upp á nám með nýju skipulagi.


 

-
Námsbraut: Viðbótarnám til stúdentsprófs

Nemendur sem ljúka skilgreindu starfsnáms- eða listnámsprófi, geta lokið stúdentsprófi með því að bæta við sig almennum bóklegum greinum.

 
Námslína: Viðbótarnám að loknu starfsnámi

Upplýsingar skóla um námið

Viðbótarnámið geta nemendur

a) skipulagt sjálfir í samráði við hlutaðeigandi framhaldsskóla miðað við skilgreind markmið um áframhaldandi nám á háskólstigi, eða
b) lokið námi í eftirtöldum greinum þannig að heildarnám þeirra verði eins og tilgreint er í töflunni:

  • Íslenska 15 ein
  • Stærðfræði 6 ein
  • Enska 12 ein
  • Íþróttir 8 ein

Fyrra nám nemenda í ofantöldum greinum kemur til frádráttar. Einnig skulu nemendur bæta við sig námi í tungumálum/náttúrufr.gr. og stærðfræði/samfélagsgr. 12 ein samkvæmt eigin vali. Fyrra nám í þeim námsgreinum sem hér um ræðir kemur ekki til frádráttar. Miða skal við að nám í grein verði ekki minna en 9 einingar samtals. Stærðfræði er þó undanskilin frá 9 eininga reglunni.

Lengd náms og einingar

Annir: frá 2 til 2
Einingar: 36

Námsgerð í boði:

Dagskóli
Kvöldskóli
Blandað nám

Tengiliður náms:

Berglind Halla Jónsdóttir áfangastjóri


http://www.fb.is/content/view/37/60/
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir