
Markmið náms á listnámsbraut er að leggja grunn að frekara námi í listgreinum í sérskólum eða í skólum á háskólastigi. Námið greinist í kjarna, kjörsvið og frjálst val nemanda. Nám í kjarna er sameiginlegt öllum nemendum brautarinnar. Kjörsvið felur í sér sérhæfingu í þeirri list- eða hönnunargrein sem nemandi velur sér: almenn hönnun, fata- og textílhönnun, fjölmiðlatækni, keramikhönnun, kvikmyndir, listdans, margmiðlunarhönnun, myndlist, og tónlist. Námið fer annaðhvort fram í viðkomandi framhaldsskóla eða viðurkenndum listaskóla.
Listnámsbraut er skipulögð sem þriggja ára námsbraut og útskrifast nemendur með listnámsbrautarpróf. Nemendur sem óska að ljúka stúdentsprófi geta bætt við sig námi í völdum bóklegum greinum og aflað sér þannig almennari réttinda til náms á háskólastigi.
Fata- og textílhönnun felur í sér sérhæfingu í textílgreinum. Farið er í fatahönnun, tískuteikningar, hugmyndavinnu, prjón, hekl, hönnunarforrit, sniðteikningar og fleira. Námið veitir góðan undirbúning undir frekara nám í textíl eða fatahönnun á háskólastigi eða öðrum sérskólum.
Hefur þú löngun til að skapa?
Þá gæti nám í textíl- og fatahönnun verið frábær valkostur fyrir þig!
Listnámsbraut í textíl- og fatahönnun býður upp á þriggja ára grunnnám. Námið er byggt markvisst upp sem undirbúningur fyrir framhaldsnám í sérskólum eða í háskólum. Nemendur, sem þess óska, geta bætt við sig einingum í bóklegum greinum og lokið stúdentsprófi á textíl- og fatahönnunarkjörsviði.
Kjörsvið textíl- og fatahönnunar á listnámsbraut felur í sér sérhæfingu í textílgreinum í samræmi við markmið aðalnámskrár fyrir framhaldsskóla.
Fatahönnun – tískuteikningar - hugmyndavinna - prjón – hekl - hönnunarforrit – sniðteikningar, eru dæmi um hvað er kennt á brautinni.
Þú þarft ekki að óttast það að vera ekki snillingur í teikningum eða hafa jafnvel aldrei saumað á þig flík, eða, hvað er hugmyndavinna? Þú gætir komið þér á óvart með þeim aðferðum sem við leiðum þig áfram með!
FB hefur verið góður kostur fyrir marga af okkar nemendum sem þegar hafa varðað leiðina og fetað brautina í textíl- og fatahönnun og við erum stolt af þeim sem hafa gefið sér tækifæri til að þroska hæfileika sína á þessu sviði.
Valkostur fyrir stúdenta!
Handíðabraut er góður valkostur innan Fjölbrautaskólans í Breiðholti, skipulögð sem eins árs námsbraut fyrir nemendur sem þegar hafa lokið stúdentsprófi eða öðru námi og fyrir nemendur sem stefna markvisst á grunnnám í list-, hönnunar- og verkmenntanámi. Verkefnin sem nemendur vinna eru notuð til að byggja upp portfoliomöppu (safnmöppu) sem nauðsynlegt er að leggja fram ef sækja á um framhaldsnám.
Dagskóli
Blandað nám