-
Námsleið: Almennt nám
-
Námsbraut: Almenn braut
Almenn námsbraut er opin öllum nemendum sem hafa lokið grunnskóla. Nám á brautinni er breytilegt eftir skólum en hver framhaldsskóli skipuleggur námsframboðið og birtir í skólanámskrá. Námsbrautin hentar nemendum sem eru óráðnir og hafa ekki gert upp hug sinn varðandi áframhaldandi nám og þeim sem vilja undirbúa sérstakt nám eða afla sér þekkingar á afmörkuðu sviði. Nemendur geta innritast á almenna námsbraut með mismunandi þarfir í huga. Suma vantar ef til vill aðeins herslumun í kjarnagreinum til þess að geta haldið áfram námi á öðrum brautum innan skólans en aðrir þurfa að bæta verulega við sig eftir nám í grunnskóla til þess að geta haldið áfram námi. Námið getur tekið eitt til tvö ár og miðast við þarfir einstakra nemenda og möguleika viðkomandi skóla til að koma á móts við þær. Hver skóli skipuleggur nám á almennri námsbraut og skilgreinir í skólanámskrá.
Námslína: Almenn braut
Þessi lína er ætluð nemendum sem uppfylla ekki almenn lágmarksskilyrði á aðrar námsbrautir framhaldsskólans.
Upplýsingar skóla um námið
Almenn námsbraut
Fyrir nemendur sem ekki hafa náð viðunandi árangri í einni eða tveimur greinum þ.e. í ENS, DAN, ISL eða STÆ eða eru óákveðnir hvaða braut þeir vilja velja.
Nemendur úr Breiðholti hafa forgang inn á brautina
Lengd náms og einingar
Annir: frá 2 til 2
Einingar: 30
Námsgerð í boði:

Dagskóli
Tengiliður náms:
Berglind Halla Jónsdóttir áfangastjóri
bhj@fb.is