+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Austurbergi 5
111 Reykjavík

Sími: 570 5600
Bréfasími: 567 0389
fb@fb.is
http://www.fb.is/
Skólameistari
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir

Tengiliður innritunar:
Berglind Halla Jónsdóttir
bhj@fb.is
5705608
Forsíða | Námsframboð | Húsnæði og þjónusta | Félagslíf og íþróttir | Listir og menning | Erlent samstarf

Fyrsti fjölbrautaskólinn

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hóf starf­semi sína 4. október árið 1975.

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti var fyrsti fjölbrautaskólinn á Íslandi. Kennsla og skipulag skólans byggist á áfan­gakerfi og fjölbreyttu framboði námsleiða. Markmið skólans hefur verið að tengja saman bóknám, verknám og listnám innan skólans, þar sem lögð er áhersla á að samnýta áfanga og gera öllum námsgreinum jafn hátt undir höfði. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur frá upphafi verið í forystu framhaldsskóla og lagt til mikilsverðar nýjungar í skólastarfi á Íslandi. Í ársbyrjun 1981 var Kvöldskóli FB stofnaður. Fjölbrautaskólinn hafði frumkvæði að stofnun sumarskóla þar sem skipuleg kennsla samkvæmt skólanámskrá skólans var útfærð yfir sumartímann.

Nú stunda u.þ.b. 1400 nemendur nám í dagskóla, 500 í kvöldskóla og um 1300 við Sumarskólann í FB sem rekinn er í húsakynnum skólans. Aðsókn bæði að kvöldskóla og dagskóla hefur aukist jafnt og þétt og er FB nú einn fjölmennasti framhaldsskóli landsins. FB starfar eftir áfangakerfi og er skólaárinu skipt í tvær átján vikna annir. Öllu námi er skipt í áfanga sem hafa mismunandi vægi eða einingar. Byrjunaráfanga í íslensku, stærðfræði, dönsku og ensku má taka á mismunandi hraða.

Námsframboð.
FB er í raun margir skólar undir sama þaki. Námsbrautirnar eru margar og hver þeirra er í reynd sérstakur skóli þó að þær tengist og njóti góðs af framlagi annarra brauta. Sumar brautir veita réttindi eftir eins eða tveggja vetra nám en stúdentsprófi má ljúka á öllum brautum skólans, að jafnaði á fjórum árum. Í dag eru námsbrautirnar við FB 27 talsins.


Sérstaða.
Í könnun sem gerð var á meðal nemenda FB kom í ljós að rúmlega 50% þeirra höfðu sótt um skólavist í FB vegna ákveðins náms sem var í boði við skólann. Í boði er ýmislegt nám sem ekki er annars staðar. Sérstaða FB felst einkum í eftirfarandi námsbrautum: Listnámsbraut, handíðabraut, snyrtibraut, sjúkraliðabraut, fjölmiðlabraut, íþróttabraut og starfsbraut fyrir fatlaða.


Þjónusta við nemendur.
Margvísleg þjónusta stendur nemendum FB til boða. Sérmenntaðir náms- og starfsráðgjafar starfa við skólann, hjúkrunarfræðingur, forvarnafulltrúi og félagsstarfastjóri. Stórt og gott bókasafn er við skólann, stærðfræðiver o.fl. Þá hafa nemendur aðgang að mötuneyti, stóra félagsaðstöðu auk þess sem bóksala er rekin í skólanum.


Félagslíf.
Öflugt félagslíf er nauðsynlegt hverjum skóla og á það ekki síst við um fjölmennan áfangaskóla eins og FB. Í áfangakerfi tilheyra nemendur ekki ákveðnum hópi eins og í bekkjarkerfi en hins vegar hafa þeir tækifæri til að kynnast fleiri samnemendum sínum. Félagslífið gegnir mikilvægu hlutverki varðandi samskipti við aðra nemendur og getur verið lykill að því hvernig nemanda líður í skólanum og hver félagsleg staða hans er.

Nemendur eiga kost á að vera meðlimir í Nemendafélagi FB en stjórn þess er kosin til eins árs í senn. Á vegum nemendafélagsins er rekin bóksala og auk þess sér félagið um félagsaðstöðu nemenda. Innan nemendafélagsins eru starfræktar tíu nefndir, hver með sína sérstöðu. Þær eru: Undirheimanefnd, ritnefnd, veggblaðsnefnd, árbókarnefnd, leiklistarnefnd, listafélagið Moli, skemmtinefnd, videónefnd, árshátíðarnefnd og íþróttanefnd. Mikilvægt er fyrir nemendur að taka þátt í félagslífi skólans frá upphafi skólavistar sinnar. Þátttaka í félagslífi er ómetanleg reynsla og gott veganesti fyrir framtíðina.


Kvöldskóli.

Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti starfar kvöldskóli og er þar boðið upp á nám á flestum brautum skólans. Þar eru gerðar sömu námskröfur og í dagskóla en kennslustundir eru í allflestum tilfellum helmingi færri. Innritun fer fram í upphafi hverrar annar og er alltaf auglýst í fjölmiðlum.

Sumarskóli.
Undanfarin ár hefur Sumarskólinn í FB verið starfræktur í húsakynnum FB. Við Sumarskólann stunda um 1300 nemendur nám. Boðið er upp á um 80 áfanga.

 

Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er lögð áhersla á að þjóna breiðum hópi nemenda og bjóða fjölbreytt nám:

  • Bóknámsbrautir til stúdentsprófs
  • Innflytjendabraut
  • Listnámsbraut með myndlistarkjörsviði
  • Listnámsbraut með textíl- og hönnunarkjörsviði
  • Húsasmíði
  • Rafvirkjun
  • Sjúkraliðabraut
  • Snyrtibraut
  • Handíðabraut
  • Uppeldisbraut
  • Viðskiptabraut
  • Fjölbreytilegt viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu list- og verknámi
  • Almenn námsbraut
  • Starfsbraut fyrir fatlaða nemendur
Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir