+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Starfsnám

-
Námsleið: Starfsnám

Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef menntamálaráðuneytisins og vef Iðunnar fræðsluseturs.

-
Námsbraut: Flugnám

 
Námslína: Einkaflugmannsskírteini, PPL(A)

Réttindi
Einkaflugmannsskírteini veitir réttindi til þess að fljúga með vini og vandamenn hvert á land sem er í sjónflugsskilyrðum án endurgjalds. Einkaflugmaður, sem hlotið hefur til þess þjálfun flugkennara, getur aflað sér aukinna réttinda í einkaflugmannsskírteini, s.s. fjölhreyflaréttindi, blindflugsréttindi, næturflugsréttindi og önnur réttindi. Þar má meðal annars nefna ; stélhjólsréttindi, flugvélar með túrbínu, flugvélar með skiptiskrúfu, flugvélar með uppdraganlegan hjólabúnað og flugvélar með loftþrýstibúnaði. Einkaflugmaður sem ætlar sér að fljúga afbrigðum af eins-eða fjölhreyflaflugvélum ber að afla sér mismunaþjálfunar á viðeigandi flugvél hjá flugkennara sem hefur til þess réttindi.

Inntökuskilyrði Flugskóla Íslands:

  • Lágmarksaldur: 16 ára
  • Ef umsækjandi er ekki fjár- eða fullráða samkvæmt íslenskum lögum ber honum að fá skriflegt samþykki forráðamanna fyrir náminu.
  • Sakavottorð:  Hreina sakaskrá


Heilbrigðiskröfur:
Nemandi þarf að hafa 1. eða 2. flokks heilbrigðisvottorð fluglækna til útgáfu einkaflugmannsskírteinis (Class 2 Medical).

Áður en flugnám hefst er mælt með því að nemendur fari í læknisskoðun. Til þess að panta læknisskoðun skal hafa samband við Fluglækningastofnun.

Tungumálakröfur:
Hafa gott vald á íslenskri og/eða enskri tungu.

Bóklegur hluti:
Kvöldnámskeið: Er 225 kennslustundir (150 klukkustundir) að lengd, kennt frá kl. 18.30 til kl. 22.00 á virkum dögum og stendur í um 12 vikur. Til þess að sitja bóklega námskeiðið þarf nemandi að vera orðinn 16 ára. Bóklegi hlutinn er metinn til u.þ.b. 6 eininga í framhaldsskóla.

Dagnámskeið/hraðnámskeið:
Er 150 kennslustundir að lengd, kennt frá kl. 14.30 til kl. 20.00 á virkum dögum og stendur í um 6 vikur. Til þess að sitja bóklega námskeiðið þarf nemandi að vera orðinn 16 ára. Bóklegi hlutinn er metinn til u.þ.b. 6 eininga í framhaldsskóla.

Fögin fyrir bóklegt einkaflugmannspróf eru: veðurfræði, flugreglur, flugeðlisfræði, mannleg frammistaða, almenn flugvélaþekking, siglingarfræði, starfshættir í flugi, fjarskipti, áætlanagerð og afkastageta.

Verklegur hluti:
Ljúka minnst 45 fartímum í flugvél, þar af minnst 25 tímum með kennara og minnst 10 einflugstímum. Einnig þarf að ljúka minnst 5 einflugstímum í yfirlandsflugi með minnst einu yfirlandsflugi sem nemur 270 km og gera þá að minnsta kosti tvær stöðvunarlendingar á tveimur flugvöllum öðrum en brottfararflugvelli.

Í lok náms þarf að standast verklegt færnipróf hjá Flugmálastjórn Íslands.

Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir