Með samstarfi skóla, stjórnvalda og atvinnulífs opnast nýir möguleikar fyrir atvinnuleitendur. Þeim sem uppfylla skilyrði gefst nú kostur á að stunda nám á haustönn án þess að greiða skólagjöld.
Markmiðið er að veita 1000 umsækjendum aðgang að framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og framhaldsfræðslu - með óskertum atvinnuleysisbótum í eina önn.
Kynntu þér þína möguleika og leitaðu ráða hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar og náms- og starfsráðgjöfum framhaldsskólanna.